Bág fjárhagsstaða hjá starfsfólki í leikskólum
Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins kynnir nýja skýrslu um fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði og heilsu starfsfólks í leik- og grunnskólum í samanburði við annað launafólk
Hærra hlutfall þeirra sem starfa í leikskólum býr við verri fjárhagsstöðu en annað launafólk í heildarsamtökunum tveimur. Starfsfólk í grunnskólum býr að jafnaði einnig við verri fjárhagsstöðu en annað launafólk.
Helmingur þeirra sem starfa í leikskóla getur ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum
Hátt hlutfall leikskólastarfsfólks (49%) gæti ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar. Hið sama á við um tæplega fjóra af hverjum tíu þeirra sem starfa í grunnskólum (37%). Hlutfallið er 30% þegar litið er til annars launafólks innan ASÍ og BSRB.
Þriðjungur þeirra sem starfa í leikskóla býr við skort eða verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum
Í könnuninni var spurt um þrettán þætti sem Hagstofa Evrópusambandsins notar til að mæla efnahagslega og félagslega stöðu fólks. Þættirnir sem spurt er um varða rekstur heimilis en einnig einstaklingsbundna þætti. Niðurstöðurnar sýna að umtalvert hærra hlutfall, sér í lagi þeirra sem starfa í leikskóla, býr samkvæmt skilgreiningu við félags- og efnislegan skort en það á við um 34% þeirra. Af þeim eru 18% sem búa við verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum. Fjórðungur þeirra sem starfa í grunnskólum fellur undir sömu skilgreiningu (25%) en sama á við um ríflega fimmtung almennt meðal launafólks (22%).
Hærra hlutfall foreldra sem starfa í leik- og grunnskólum skortir grunnþætti fyrir börnin sín
Um eða yfir fjórðungur þeirra sem starfa í leik- og grunnskólum og eru með börn á heimili hefur sökum fjárskorts á síðastliðnu ári ekki getað greitt kostnað vegna félagslífs barna sinna, nauðsynlegan fatnað fyrir börn sín eða gefið börnum sínum eins næringarríkan mat og þau vilja. Hlutfallið er í öllum tilfellum hærra en almennt meðal launafólks í heildarsamtökunum tveimur.
Lægra hlutfall starfsfólks í leikskólum er í eigin húsnæði
Mikill munur er á stöðu leikskólastarfsfólks og grunnskólastarfsfólks á húsnæðismarkaði. Meirihluti þeirra sem starfa í grunnskóla er í eigin húsnæði eða ríflega sjö af hverjum tíu (73%). Sama á hins vegar við um tæplega sex af hverjum tíu meðal þeirra sem starfa í leikskólum (57%).
Fjórir af hverjum tíu þeirra sem starfa í leikskóla mælast með slæma andlega heilsu
Hátt hlutfall leikskólastarfsfólks mælist með slæma andlega heilsu eða fjórir af hverjum tíu (38%) en sama á við mun lægra hlutfall þeirra sem starfa í grunnskólum eða tæplega fjórðung (23%). Tæplega helmingur þeirra sem starfa í leikskóla finnur meira en helming tímans eða daglega fyrir þreytu og orkuleysi (48%). Tæplega þremur af hverjum tíu líður illa með sjálfan sig eða finnst að þeir hafi ekki staðið sig í stykkinu gagnvart sjálfum sér eða fjölskyldu sinni (28%).
Í skýrslunni er greint frá stöðu starfsfólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem starfa í leik- og grunnskólum. Skýrslan nær ekki til fagmenntaðra kennara þar sem þeir eru ekki félagar í heildarsamtökunum tveimur.
Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins leggur árlega fyrir könnun meðal launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Í könnun Vörðu var spurt um stöðu á vinnumarkaði og starfsgreinar sem og um fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði og líkamlega og andlega heilsu. Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB – heildarsamtaka stéttarfélaga starfsmanna í almannaþjónustu og var lögð fyrir í júní og júlí 2025. Þetta er fimmta árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú þar sem tæplega 25.000 svör bárust.
Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar. Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.
Niðurstaða könnunar Vörðu meðal félagsfólks Bárunnar
Niðurstöður nýrrar könnunar Vörðu meðal félagsfólks Bárunnar sýna að hópurinn sker sig að ýmsu leyti frá öðrum stéttarfélögum innan ASÍ og BSRB. Félagsfólk Bárunnar er almennt yngra en í samanburðarhópum, þar sem sex af hverjum tíu eru 40 ára eða yngri, og hlutfall kvenna er einnig hærra. Þá er áberandi að hlutfall innflytjenda innan félagsins er töluvert meira en almennt gerist á vinnumarkaði.
Niðurstöðurnar benda til þess að staða félagsfólks Bárunnar sé veikari en hjá öðrum launamönnum þegar kemur að tekjum, þar sem hærra hlutfall er með lágar mánaðartekjur og færri ná hærri tekjumörkum.
Fjárhagsstaða endurspeglar þetta að hluta, en fleiri innan Bárunnar eiga erfitt með að ná endum saman og lægra hlutfall félagsfólks getur mætt óvæntum útgjöldum án þess að stofna til skulda. Þá býr um þriðjungur við einhvers konar efnislegan og félagslegan skort, sem er hærra hlutfall en mælist almennt meðal launafólks.
Einnig kemur fram að staða á húsnæðismarkaði er ólík, þar sem færri eru í eigin húsnæði og fleiri á leigumarkaði eða í ótryggari búsetuformum. Sparnaður er almennt minni, þó skuldastaða sé svipuð og hjá öðrum hópum.
Þrátt fyrir þetta sýna niðurstöður að líkamleg og andleg heilsa félagsfólks Bárunnar er svipuð og hjá öðrum launamönnum. Heildarniðurstaðan dregur þó fram að félags- og efnahagsleg staða hópsins er að mörgu leyti viðkvæmari og undirstrikar mikilvægi áframhaldandi vinnu að bættum kjörum.
Hér er hægt að nálgast niðurstöðu könnunar Vörðu meðal félagsfólk Bárunnar.