Við vinnum fyrir þig

Translate to

Bensínverð hækkar um 13% frá áramótum

Vikumeðaltal lægstu bensínverða hefur hækkað um 24 krónur (tæp 13%) frá upphafi árs samkvæmt frétt á heimasíðu ASÍ. Hækkunin kom meira og minna öll fram í mars, í framhaldi af stigvaxandi hernaðaraðgerðum gegn Íran. Verðhækkanir eru einungis að hluta komnar fram í mælingum Hagstofunnar, en verð hefur hækkað um 9% frá því verðtaka vegna vísitölu neysluverðs lauk þann 13. mars. Þó má vænta þess að vopnahlé í Íran muni leiða til lækkana á bensínverði en verð á heimsmarkaði hefur nú þegar lækkað um 15% frá því það var samþykkt í gær.

Drjúgar hækkanir í mars

Í upphafi marsmánaðar var 95 oktana bensín ódýrast hjá Costco (168,1 kr./l), en dýrast hjá Olís í Hrauneyjum (219,2 kr./l). Því munaði rúmlega 51 krónu á hæsta og lægsta fáanlega verði. Þann 7. apríl var eldsneytið enn ódýrast hjá Costco (207,1 kr./l) og dýrast í Hrauneyjum (251,2 kr./l), en munurinn hefur dregist saman og er nú rúmar 44 krónur.

Verðhækkanir hjá Costco voru umtalsvert umfram aðra söluaðila, eða um tæpar 39 krónur. Lægstu verð hækkuðu á bilinu 27 til 30 krónur frá mars hjá söluaðilum með fleiri en eina dælustöð. Dýrustu stöðvar söluaðila hækkuðu um sömu krónutölu, nema í tilfelli Atlantsolíu. Þar giltu sérstök afsláttarkjör frá 30. mars til 7. apríl og lítraverð það sama á öllum stöðvum. Sé litið framhjá afsláttarkjörum nam hækkun dýrustu Atlantsolíustöðva 26,5 krónum á tímabilinu 1.–29. mars.

Allt að 1080 krónum dýrara að fylla 30 lítra bensíntank

Áhrif verðhækkana síðustu vikna eru umtalsverð á rekstrarkostnað bifreiða. Kostnaður við að dæla 30 lítrum af bensíni var á bilinu 5.133-6.576 kr. í upphafi árs þar sem ódýrasta verðið var að finna í Costco og hæsta verðið var hjá Olís. Eftir verðhækkanir er ódýrasta verðið enn að finna í Costco en bensíntankurinn kostar 1080 krónum meira en í byrjun árs. Olís er enn með dýrasta verðið en þar nemur hækkunin 960 kr.

Áhrif hækkana ekki að fullu komin í verðbólgumælingar

Verð á bensíni hækkaði um 5,8% í mars samkvæmt Hagstofunni og námu áhrif á vísitölu neysluverðs 0,1% til hækkunar. Verð á dísel hækkaði um 6,9% á sama tímabili. Verðtaka Hagstofunnar stóð yfir á tímabilinu 9-13. mars en frá þeim tíma hefur meðaltal lægstu verða á bensíni  hækkað um rúmlega 8%. Því er ljóst að bein áhrif verðhækkana eru einungis komin að hluta fram í mælingum Hagstofunnar til grundvallar vísitölu neysluverðs.

Vopnahlé í Íran leitt til lækkana á heimsmarkaði

Vopnahléssamningar náðust milli Bandaríkjanna og Írans, seint í gær. Samkomulagið, felur í sér tímabundið hlé á hernaðaraðgerðum og opnun Hormuz sundsins. Áhrifa þess gætir nú þegar á heimsmörkuðum, en Brent hráolía hefur nú þegar lækkaði um 15%. Hlutabréfamarkaðir hafa hækkað víða og verð á jarðgasi lækkað samhliða olíuverði.

Engu að síður er óvissan enn veruleg. Vopnahléið er tímabundið og viðræður um varanlegt samkomulag óhafnar. Greiningaraðilar benda jafnframt á að truflanir á flutningsleiðum og aðfangakeðjum muni ekki hverfa á einni nóttu. Það gæti haldið uppi orkuverði á næstunni, miðað við það sem áður var.

Sjá nánari upplýsingar í frétt á heimasíðu ASÍ