Við vinnum fyrir þig

Breiðfylkingin samþykkir framlengingu við SA

Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undirritaði seint í gærkvöldi samkomulag við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga, með fyrirvara um samþykki aðildarfélaganna. 

Samhliða samkomulaginu hafa stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnulíf lýst yfir aðgerðum til að halda aftur af verð- og gjaldskrárhækkunum. Einnig hafa verið boðaðar réttarbætur fyrir launafólk og verður framvinda samkomulagsins metin mánaðarlega.

Báran stéttarfélag sat hjá þegar samkomulagið var tekið til afgreiðslu á fundi formanna aðildarfélaga SGS.

Ástæða er til að harma að ekki hafi verið leitað eftir samstarfi við VR, LÍV og Fagfélögin áður en gengið var frá samkomulaginu við SA. Þar lágu fyrir aðrar áherslur og kröfur um frekari tryggingar vegna forsendubrestsins.

Að mati Bárunnar hefði átt að leita allra leiða til að ná breiðari samstöðu innan verkalýðshreyfingarinnar og kanna hvort hægt væri að sameinast um kröfur gagnvart atvinnurekendum. Það var ekki gert.

Þegar forsendur kjarasamninga bresta eigum við að nýta styrk samstöðunnar. Því harmar Báran að ekki hafi verið leitað eftir því að sameina krafta hreyfingarinnar áður en gengið var frá niðurstöðunni.