Við vinnum fyrir þig

Translate to

Dagskrá 1. maí 2026

Lúðrasveit Selfoss og Hestamannafélagið Sleipnir leiða kröfugöngu kl. 11:00 frá Austurvegi 56 að Hótel Selfossi þar sem dagskrá og skemmtun fer fram.

Kynnir er Jónas Yngvi Ásgrímsson.

Ræðumaður dagsins er Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB. Þá mun einnig taka til máls ungur ræðumaður frá Menntaskólanum á Laugarvatni, Elena R. Marquez Gunnlaugsdóttir.

Glæsileg dagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna. Tónlistaratriði verða frá Tónsmiðju Suðurlands þar sem fram koma Rannveig Helga Kjartansdóttir og Örn Hreinsson. Leikhópurinn Lotta mun skemmta gestum og fimleikadeildin sér um andlitsmálun fyrir yngstu kynslóðina.

Við hvetjum öll til að mæta og taka þátt í deginum, njóta samverunnar og standa saman.

Slagorð dagsins að þessu sinni: Styrkur okkar er velferð allra.

Hér er hægt að nálgast dagskránna.