We work for you

Ný verðkönnun á páskaeggjum – allt að 57% verðmunur

Mesti verðmunur á páskaeggjum reyndist 57% en algengast var að sjá um 30% verðmun á hæsta og lægsta verði páskaeggja í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudaginn. Bónus var oftast með lægsta verðið en Samkaup-Úrval var oftast með hæsta verðið. Flest páskaeggin í könnuninni voru fáanleg hjá Fjarðarkaupum en fæst í Bónus.

Bónus var með lægsta verðið á 26 af þeim 38 tegundum páskaeggja sem kannaðar voru. Hæsta verðið í könnuninni var oftast hjá Samkaupum-Úrval eða á 21 páskaeggi af 38. Benda má á að í um þriðjungi tilvika er undir 2 kr. verðmunur á Bónus og Krónunni, þ.e.a.s. að eggin hjá Krónunni eru allt að 2 kr. dýrari en hjá Bónus.

Oftast um 30% verðmunur á hæsta og lægsta verði

Oftast var um 30% verðmunur á hæsta og lægsta verði páskaeggjanna í könnuninni. Sem dæmi má nefna að 32% verðmunur var á 480 gr. Nizza karamellu og bragðarefs házkaeggi frá Nóa Síríus sem var ódýrast á 2.115 kr. hjá Bónus en dýrast á 2.789 kr. hjá Samkaupum-Úrvali, en það er 674 kr. verðmunur. Þá var 38% verðmunur á 450 gr. Appolo fylltu lakkrís páskaeggi nr. 5 frá Góu sem var ódýrast á 1.445 kr. hjá Bónus en dýrast á 1.999 kr. hjá Samkaupum-Úrvali sem er 554 kr. verðmunur.  Freyju rísegg nr. 4 var ódýrast á 1.087 kr. hjá Bónus en dýrast á 1.449 kr. hjá Hagkaupum sem er 33% verðmunur.

Minnstur verðmunur í könnuninni var á Góu páskaeggi nr. 4 sem var ódýrast á 1.095 kr. hjá Krónunni en dýrast á 1.229 kr. hjá Hagkaupum sem er 12% verðmunur. Mestur verðmunur að þessu sinni var 57% á Nóa Síríus páskaeggi nr. 3 og Freyju ríseggi nr. 9, en páskaeggið frá Nóa Síríus var dýrast hjá Víði og ódýrast hjá Bónus en Freyju eggið var ódýrast hjá Krónunni en dýrast hjá Samkaupum-Úrvali.

Sjá nánar niðurstöður í töflu.

Verðkönnunin tók til algengra páskaeggja frá íslenskum framleiðendum.

Könnunin var gerð þriðjudaginn 24.mars í eftirfarandi verslunum: Bónus, Krónunni, Nettó, Iceland, Hagkaupum, Fjarðarkaupum, Samkaupum-Úrvali, Nóatúni og Víði.

This is only a direct price comparison, but it does not evaluate the quality or service of the vendors.

It is prohibited to cite the survey in advertising and sales without permission from ASÍ.

Taken from the ASÍ homepage