Kostnaður við íþróttir getur hlaupið á hundruðum þúsunda – Frístundastyrkir duga skammt
Æfingagjöld geta numið yfir hálfri milljón á ári fyrir tvö börn sem iðka knattspyrnu og körfubolta eftir að frístundastyrkir sveitarfélags hafa verið nýttir. Samanburður ASÍ sýnir að aldur barna, val á íþróttafélagi og búseta geta skipt verulegu máli fyrir útgjöld fjölskyldna. Ný samantekt á fimleikagjöldum sýnir að kostnaður getur verið mikill þótt barn stundi aðeins eina íþrótt.
Sé kostnaður við íþróttaiðkun settur í samhengi við tekjur má sjá að hann getur numið allt að 16% af lágmarkslaunum sé foreldri með tvö börn í íþróttum. Þar af er kostnaður í meðalsveitarfélagi um 11% af lágmarkslaunum.
Ljóst er að heimili á lágmarkslaunum eru í þröngri stöðu þegar kemur að því að senda börnin sín í skipulagðar íþróttir utan skóla.
Verðlagseftirlit ASÍ hefur að undanförnu tekið saman kostnað við íþróttaiðkun barna. Þegar æfingagjöld í handbolta og körfubolta voru skoðuð kom þar fram tugþúsunda króna munur milli félaga fyrir jafngömul börn. Gjöld fyrir 14–15 ára fóru yfir 175 þúsund krónur í handbolta og 180 þúsund krónur í körfubolta.
Í umfjöllun um æfingagjöld vegna knattspyrnu mátti sjá svipaða þróun. Mikill munur reyndist milli félaga og hafði kostnaður við iðkun tilhneigingu til að aukast með aldri. Fyrir 10–11 ára börn var iðkun gjaldfrjáls hjá sumum félögum en hæsta reiknaða mánaðargjaldið 17.750 krónur. Fyrir 14–15 ára var bilið frá 2.000 upp í 19.250 krónur á mánuði.
Sjá frétt á heimasíðu ASÍ þar sem hægt er að sjá mun milli félaga.