Nýr vaktsími fyrir orlofshús
Til að bæta þjónustu við leigugesti hefur Báran tekið upp nýjan vaktsíma fyrir orlofshús félagsins á Flúðum og í Grímsnesi.
Ef upp koma vandamál á meðan á dvöl stendur er hægt að hafa samband í vaktsímann:
792-1727
Vaktsíminn er eingöngu ætlaður fyrir brýn erindi sem ekki geta beðið til næsta virka dags svo sem ef upp kemur óvænt bilun eða annað atvik sem krefst tafarlausra viðbragða. Fyrir almennar fyrirspurnir eða önnur erindi biðjum við félagsfólk að hafa samband við skrifstofu Bárunnar á hefðbundnum opnunartíma.