Orlofsuppbót 2025
Orlofsuppbót fyrir orlofsár miðað við fullt starf (1.maí til 30. apríl). Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Uppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí. Orlofsuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
| Almenni samningur milli SGS og SA | 60.000 kr. |
| Samningur f.h. Ríkissjóðs og SGS | 60.000 kr. |
| Samingur SGS og Launanefndar sveitarfélaga | 59.500 kr. |
| Samningur SA vegna Sólheima við Báruna, stéttarfélag | 60.000 kr. |
| Skaftholt | 59.500 kr. |
| Vinnustaðasamningur Mjólkurbús Flóamanna | 60.000 kr. |
| Bændsamtök Íslands og SGS | 60.000 kr. |
| Landsamband smábátaeigenda og SGS | 60.000 kr. |
| Landsvirkjun og SGS | 160.000 kr. |
Orlofs- og Desemberuppbót
Orlofsuppbót er greidd í maí/júní ár hvert. Desemberuppbót …