Pracujemy dla Ciebie

Fjölbreytt nám fyrir fullorðna og íslenskunámskeið víða um Suðurland

Fræðslunetið símenntun á Suðurlandi býður í haust upp á fjölbreytt nám fyrir fullorðna og íslenskunámskeið víða um Suðurland. Markmið námsins er að efla tækifæri íbúa til starfsþróunar, styrkja stöðu þeirra á vinnumarkaði og undirbúa þá fyrir frekara nám.

Meðal þess náms sem boðið verður upp á eru:

  • Fagnám í félags- og heilbrigðisþjónustu
  • Félagsliðagátt
  • Leikskólaliðar og stuðningsfulltrúar
  • Menntastoðir

Jafnframt verða íslenskunámskeið í boði á nokkrum stöðum á Suðurlandi, meðal annars í Hveragerði, Þorlákshöfn, Selfossi, Hellu, Hvolsvelli, Vík, Kirkjubæjarklaustri og Höfn, auk fjarnáms. Við hvetjum félagsmenn að kynna sér námsleiðir sem eru í boði hjá Fræðslunetinu.

Więcej informacji na stronie heimasíðu Fræðslunets Suðurlands.