Pracujemy dla Ciebie

Stjórnir Bárunnar stéttarfélags og Verkalýðsfélags Suðurlands ræddu um framtíðarsýn félaganna

Stjórnir Bárunnar stéttarfélags og Verkalýðsfélags Suðurlands (VLFS) áttu sameiginlegan fund á Hvolsvelli nú í september síðastliðnum. Tilefni fundarins var erindi Bárunnar frá árinu 2025 þar sem óskað var eftir samtali um framtíðarsýn félaganna og hvort grundvöllur væri fyrir því að skoða mögulega sameiningu félaganna nánar.

Á fundinum var rætt um þær áskoranir sem stéttarfélög standa frammi fyrir, meðal annars vegna breytinga á vinnumarkaði og aukins umfangs kjaramála. Fram kom að bæði félög standa vel fjárhagslega og að hugmyndir um mögulega sameiningu snúist fyrst og fremst um að skapa sterkara félag, tækifæri til að efla vinnustaðaeftirlit, auka sérhæfingu starfsfólks, þróa þjónusta félaganna enn frekar og styrkja hagsmunagæslu félagsfólks.

Jafnframt var lögð rík áhersla á mikilvægi þess að viðhalda góðri nærþjónustu og sterkum tengslum við félagsfólk um allt félagssvæðið. Ef til sameiningar kæmi þyrfti að tryggja að þjónusta færðist ekki frá núverandi félagssvæðum og að sjónarmið félagsfólks á öllum svæðum fengju áfram vægi.

Engin ákvörðun var tekin á fundinum um sameiningu eða að hefja formlegt sameiningarferli. Fundurinn var fyrsta skref í samtali félaganna og munu stjórnir þeirra nú taka umræðuna áfram hvor innan sinnar stjórnar.

Einnig var rætt um mikilvægi þess að fá fram sjónarmið félagsfólks, meðal annars með mögulegri könnun, áður en ákvarðanir yrðu teknar um framhald málsins.