Við vinnum fyrir þig

Translate to

Skatthlutfall, skattþrep og persónuafsláttur ársins 2026

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið frá sér tilkynningu um skattbreytingar á árinu 2026. Þar kemur meðal annars fram hvert staðgreiðsluhlutfall næsta árs verður, sem og fjárhæð persónuafsláttar og hvar skattþrepamörkin munu liggja.

Skatthlutfall einstaklinga í staðgreiðslu 2026

Skattþrep 1: Af tekjum 0 – 498.122 kr.31,49%
Skattþrep 2: Af tekjum 498.123 – 1.398.450 kr.37,99%
Skattþrep 3: Af tekjum yfir 1.398.450 kr.46,29%
Skatthlutfall barna (fædd 2011 eða síðar) af tekjum umfram 300.000 kr. á ári6%
Persónuafsláttur á mánuði72.492 kr.
Persónuafsláttur á ári869.898 kr.

Nánari upplýsingar á vef RSK.