Skráð atvinnuleysi hærra en í fyrra
Skráð atvinnuleysi í júlí var 3,4% og var óbreytt frá
síðasta mánuði samkvæmt tilkynningu á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í júlí 2024 var atvinnuleysið hins vegar 3,1%.
Að meðaltali voru 7.448 atvinnulausir í júlí, 4.288 karlar
og 3.160 konur. Meðalfjöldi atvinnulausra hækkaði um
50 manns milli mánaða.
Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi fari
hækkandi í ágúst og verði 3,5%.
Sjá tilkynningu á heimasíðu Vinnumálstofnunar