Við vinnum fyrir þig

Sumarlokun og úthlutun styrkja

Lokað verður á skrifstofu Bárunnar vegna sumarleyfa frá 27. júlí til og með 7. ágúst næstkomandi. Athugið breyttar dagsetningar á greiðslu styrkja úr sjóðum félagsins.

Menntastyrkir

Ekki verða greiddir menntastyrkir í júlí.

Ágúst:
menntastyrkir verða greiddir 24. ágúst. Skilafrestur gagna er til 17. ágúst.

Þar á eftir verða styrkir greiddir út 15. hvers mánaðar eða síðasta virka dag fyrir 15. hvers mánaðar eins og venja er.

Heilsu- og forvarnarstyrkir

Júlí:

Styrkir verða greiddir 24. júlí. Skilafrestur gagna er til 17. júlí.

Ágúst:

Styrkir verða greiddir 14. ágúst. Skilafrestur gagna er til 10. ágúst.

Þar eftir annan hvern föstudag eins og venja er.

Sjúkradagpeningar


Júlí:


Sjúkradagpeningar verða greiddir eins og vanalega en það verður breyttur skilafrestur gagna í júlí.
Skilafrestur verður til 17. júlí. Mikilvægt er að öllum gögnum sé skilað tímanlega.

Þar á eftir verður skilafrestur gagna 25. hvers mánaðar eins og venja er.

Sumarkveðjur,


Starfsfólk Bárunnar, stéttarfélags.