Við vinnum fyrir þig

Translate to

Kæru félagsmenn,

Uppstillingarnefnd Bárunnar hefur lokið gerð tillögu að lista til stjórnar og nefnda fyrir starfsárið 2026–2027, í samræmi við lög félagsins. Tillagan verður lögð fram á aðalfundi félagsins mánudaginn 11. maí 2026.

Kynning á lista

Listi uppstillingarnefndar liggur frammi til kynningar frá og með 31. mars á eftirtöldum stöðum:

  • Á skrifstofu Bárunnar, Austurvegi 56, Selfossi.
  • Á heimasíðu félagsins

Embætti og nefndir sem kosið er um:

Á aðalfundinum 2026 verður kosið í eftirtalin embætti:

Embætti / NefndFjöldi fulltrúa
Stjórn félagsinsFormaður og tveir meðstjórnendur
VarastjórnÞrír varamenn
Stjórn sjúkrasjóðsFimm aðalmenn
Úthlutunarnefnd vinnudeilusjóðsÞrír aðalmenn og tveir til vara
KjörstjórnTveir aðalmenn og tveir til vara
UppstillingarnefndÞrír aðalmenn og einn til vara
Skoðunarmenn reikningaTveir aðalmenn og einn til vara

Framboðsfrestur

Frestur til að bjóða sig fram eða leggja fram aðrar tillögur til uppstillingarnefndar er til og með 30. apríl 2026.

Tillögum skal skila skriflega á skrifstofu félagsins að Austurvegi 56 (3. hæð), Selfossi.

Hér er tillaga Uppstillingarnefndar.