Við vinnum fyrir þig

Translate to

Umsókn um orlofseign fyrir páskana 2026

Nú styttist í að hægt verði að sækja um orlofseignir fyrir páskana 2026.

Leigutímabilið er frá 1. til 8. apríl.

Umsóknarfrestur er frá 14. janúar 2026 kl. 10:00 og lýkur 28. janúar 2026 kl. 10:00. Sótt er um á Félagavef Bárunnar

Niðurstöður úthlutunar verða síðan kynntar föstudaginn 30. janúar 2026

Við minnum á að það er gríðarlega mikilvægt að fara vel yfir og skrá rétt netfang í umsókninni. Allar tilkynningar um úthlutun og önnur mikilvæg samskipti verða send á það netfang sem gefið er upp.

Þess má geta að íbúðirnar í Sóltúni 28, Reykjavík og Borgartúni 24a verða áfram í sveigjanlegri leigu, sem veitir meiri valmöguleika fyrir þá sem hyggja á páskafrí í höfuðborginni. Nánari upplýsingar um þær leigueiningar er hægt að finna hér.