Við vinnum fyrir þig

Translate to

Mikilvægar upplýsingar

  • Ef veikindi eða slys ber að skal hringja í neyðarnúmerið 112.
  • Bráðavakt er á Sjúkrahúsinu á Selfossi – sími 432 2000.
  • Læknavakt: 1700.

Aðgengi

  • Húsið er með lyklalausu aðgengi.
  • Aðgangsnúmer er að finna í leigusamningi sem sendur var í tölvupósti.
  • Einnig er hægt að nálgast samninginn á félagsvef Bárunnar.

Heitur pottur

  • Sjá leiðbeiningar á næstu síðu og í geymslu.

Almennar reglur

  • Öll hús eru reyklaus. Vinsamlegast notið stubbahús og gangið vel um umhverfið.
  • Gæludýr (hundar og kettir) eru ekki leyfð í orlofshúsum.
  • Þar sem húsin standa þétt saman er gestum bent á að sýna nágrönnum tillitssemi, sérstaklega varðandi hávaða.
  • Ekki geyma rusl utandyra, þar sem það getur laðað að dýr.
  • Sorpgámar: sjá upplýsingar á næstu síðu.

Brottför og þrif

  • Skila skal húsinu hreinu og snyrtilegu eigi síðar en kl. 12:00 á brottfarardegi.
  • Skilið húsið eins og þið viljið koma að því.

Við brottför skal m.a.:

  • Taka úr uppþvottavél
  • Þrífa eldavél, ísskáp og ofn ef það hefur verið notað
  • Ryksuga og skúra öll gólf
  • Þrífa grill

Þrifaþjónusta

  • Fyrirtækið HSH Þrif og flutningar ehf. býður upp á þrif gegn gjaldi.
  • Gestir panta og greiða beint til þjónustuaðila.

Upplýsingar og pantanir:

  • Netfang: hshflutningar@gmail.com
  • Sími: 792 1727

Athugið:

  • Panta þarf þrif með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara.
  • Þjónustan er ekki á vegum Bárunnar.
  • Ef þrif eru ekki keypt bera gestir sjálfir ábyrgð á þrifum samkvæmt reglum.

Lín (rúmföt o.fl.)

  • Hægt er að leigja lín hjá HSH Þrif og flutningar ehf.
  • Pantanir og greiðsla fara beint til þjónustuaðila.

Upplýsingar:

  • Netfang: hshflutningar@gmail.com
  • Sími: 792 1727

Athugið:

  • Panta þarf lín með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara.
  • Ef lín er ekki leigt þurfa gestir að koma með sitt eigið.
  • Þjónustan er ekki á vegum Bárunnar.

Ábyrgð og skemmdir

  • Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum búnaði á leigutíma.
  • Leigutaki skuldbindur sig til að bæta tjón sem verður af hans völdum eða gesta hans, óháð því hvort hann dvelji sjálfur í húsinu.
  • Tilkynna skal tafarlaust um skemmdir með því að senda upplýsingar og myndir á:
    baran@baran.is

Samskipti

  • Sími félagsins: 480-5000
  • Skrifstofutími:
    • Mánudagur–fimmtudagur: 08:00–16:00
    • Föstudagur: 08:00–15:00
  • Netfang: baran@baran.is

Viðurlög

  • Ef húsi er ekki skilað nægilega vel þrifnu getur leigutaki þurft að greiða refsigjald að upphæð kr. 30.000.

Leiðbeiningar fyrir heita pott