Við vinnum fyrir þig

Translate to

Verðkönnun á jólabókum

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á jólabókum þann 18. desember í 6 verslunum, Bónus, Nettó, Hagkaup, Forlaginu, Bóksölu Stúdenta og Eymundsson en alls var verð kannað á 496 bókatitlum. Vöruúrval er mismunandi milli verslana, en fæstir bókatitlar fundust í Bónus, alls 170, og flestir í Eymundsson, alls 479.

Af þeim bókatitlum sem voru til í öllum verslunum var lægsta verðið oftast að finna í Bónus á meðan hæsta verðið var oftast að finna í Forlaginu. Ef lágvöruverslanirnar Bónus og Nettó eru undanskildar, var lægsta verðið oftast að finna í Bóksölu Stúdenta.

Segja má að verðstríð sé í gangi á milli Nettó og Bónus, þar sem litlu munar á verði sem hefur farið lækkandi frá því verðlagseftirlit skoðaði verð fyrr í mánuðinum. Afslættir í Eymundsson hafa verið tíðir í aðdraganda jóla og því lítið mark takandi á upphaflegu listaverði.

Algengt er að verðmunur hlaupi á bilinu 500-1500 krónum á bækurnar og því getur verið gott fyrir neytendur að gera verðsamanburð. Samanburðinn má sjá í heild sinni hér. Vert er að benda neytendum á að hægt er að bera saman nýjustu verð á Verdlagseftirlit.is eða með samanburði í Nappinu.

Sjá frétt og nánari upplýsingar um samanburð á bókum á heimasíðu ASÍ ( www.asi.is )