Við vinnum fyrir þig

Translate to

Öllum launagreiðendum er skylt að draga staðgreiðslu opinberra gjalda frá launum og öðrum staðgreiðsluskyldum greiðslum til launamanna og skila í ríkissjóð. Á sama hátt á að draga staðgreiðslu frá reiknuðu endurgjaldi þeirra sem starfa við eigin atvinnurekstur. Staðgreiðslan samanstendur af tekjuskatti og útsvari og er fyrirframgreiðsla upp í álagningu opinberra gjalda samkvæmt skattframtölum einstaklinga. Tekjuskattur rennur í ríkissjóð og útsvarið til viðeigandi sveitarfélags.

Hægt er að nálgast allar nánari upplýsingar um skattkerfið inná heimasíðu RSK 

 

Skatthlutfall einstaklinga í staðgreiðslu 2024

Skattþrep 1: Af tekjum 0 – 446.136 kr. 31,48%
Skattþrep 2: Af tekjum 446.137 - 1.252.501 kr. 37,98%
Skattþrep 3: Af tekjum yfir 1.252.501 kr. 46,28%
Skatthlutfall barna (fædd 2009 eða síðar) af tekjum umfram 180.000 kr. á ári 6%
Persónuafsláttur á mánuði 64.926 kr.
Persónuafsláttur á ári 779.112 kr.

Nánari upplýsingar hér

Persónuafsláttur

Allir sem náð hafa 16 ára aldri á tekjuárinu og eru heimilisfastir á landinu eiga rétt á persónuafslætti. Sama gildir um þá sem hafa rétt til að halda hér á landi skattalegu heimili þrátt fyrir dvöl erlendis vegna náms eða veikinda. Hjá þeim sem ná 16 ára aldri á tekjuárinu reiknast fullur persónuafsláttur fyrir allt árið.

Nánari upplýsingar hér

Skattaframtal

Skattframtal er staðfesting á öllum þeim tekjum, eignum og skuldum sem þú áttir á skattárinu sem leið. Mikilvægt er að allir standi skil á sínu framtölum. Réttar upplýsingar þurfa að berast skattstjóra svo hægt sé að reikna út skatta og bætur.

Ítarlegar leiðbeiningar um skattframtöl má finna á heimasíðu skattsinns.