Aðalfundur Bárunnar, stéttarfélags
Aðalfundur Bárunnar, stéttarfélags verður haldinn mánudagskvöldið 5. maí nk. í
húsakynnum félagsins að Austurvegi 56, 3. hæð, Sefossi. Fundurinn hefst kl. 19:00.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs
3. Önnur mál
Boðið verður upp á veitingar. Aðalfundargestir taka þátt í happdrætti. Þegar hefðbundnum
aðalfundarstörfum lýkur ætlar Sólmundur Hólm Sólmundarson útvarpsmaður og eftirherma að skemmta aðalfundargestum.
Stjórn Bárunnar, stéttarfélags