Við vinnum fyrir þig

Translate to

Allt að 83% verðmunur á umfelgun

Tími dekkjaskipta er runnin upp en frá 15. apríl er ólöglegt að aka á nagladekkjum. Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 22 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið sl. þriðjudag. AB – varahlutir á Akureyri voru oftast með lægsta verð á fyrrnefndri þjónustu í þessari könnun.

Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa (t.d. Mitshubishi)  með 18´´ áfelgum (265/60R18) sem var ódýrust á 7.500 kr. hjá Dekkverk en dýrust á 13.706 kr. hjá Sólningu. Verðmunurinn er 6.206 kr. eða 83%. Fyrir stálfelgu umfelgun af sömu stærð er þjónustan ódýrust hjá Dekkverk á 7.500 kr., en dýrust hjá Hjólbarðaverkstæði Kaldasels á 11.800 kr. Verðmunurinn er 4.300 kr. eða 57%.

Minnstur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti undir smábíl og minni meðalbíl á 14 og 15´´ stálfelgu (175/65R14 og 195/65R15), sem var ódýrust á 4.900 kr. hjá AB – varahlutum á Akureyri, en dýrust á 6.807 kr. hjá Höldur á Akureyri. Verðmunurinn er 1.907 kr. eða 39%. Fyrir álfelgu af sömu stærð er þjónustan ódýrust á 4.900 kr. hjá AB – varahlutum en dýrust á 7.269 hjá Max 1 í Reykjavík. Verðmunurinn er 2.369 kr. eða 48%.

Verð á umfelgun fyrir meðalbíl (t.d. Subaru Legacy) á 16´´ stál og álfelgum (205/55R16) var ódýrust á 4.900 kr. hjá AB – varahlutum en dýrust á 7.862 kr. hjá Smur, bón og dekkjaþjónustunni Reykjavík. Verðmunurinn er 2.962 kr. eða 60%.

Skipting, umfelgun og jafnvægisstilling fyrir jeppling (t.d. Toyota Rav) á 16´´ álfelgum (225/70R16) var ódýrust á 5.900 kr. hjá AB – varahlutum en dýrust á 9.450 kr. hjá Max 1. Verðmunurinn er 3.550 kr. eða 60%. Fyrir bíl með stálfelgu af sömu stærð var þjónustan ódýrust á 5.900 kr. hjá AB – varahlutum en dýrust á 9.900 kr. hjá Bílaverkstæði Austurlands. Verðmunurinn er 4.000 kr. eða 68%.

Sjá nánar niðurstöður í frétt á heimasíðu ASÍ

Bílabúð Benna, Gúmmívinnustofan SP dekk, Kvikkfix, Bílavogur, BJB, JL tækni, Dekkjahöllin, Nesdekk, N1, Hjólbarðaþjónusta Magnúsar Selfossi, Toyota Selfossi, Gúmmívinnslan og Kraftbílar neituðu þátttöku í verðkönnun verðlagseftirlitsins.

Kannað var verð á þjónustu við dekkjaskiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á álfelgum og stálfelgum af stærðum 14,15,16 og 18´´ á 22 hjólbarðaverkstæðum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Verðin í könnuninni eru án afsláttar en verkstæðin bjóða upp á margskonar afsætti t.d. FÍB, eldri borgara og staðgreiðslu o.s.frv. Viðskiptavinir eru hvattir til að spyrja hvort afslættir séu í boði.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Tekið af heimasíðu ASÍ