Við vinnum fyrir þig

Translate to

Bónus ódýrast

Bónus var með lægsta verðið á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum víðsvegar um landið síðastliðinn mánudag. Matarkarfan var ódýrust í Bónus á 20.404 kr. en dýrust í Nóatúni á 24.680 kr. sem er 4.276 kr. verðmunur eða 21%. Matarkarfan í Samkaupum-Úrvali var næst dýrust eða á 24.658 kr. eða 22 kr. ódýrari en karfan í Nóatúni.

Fjarðarkaup var með næst ódýrustu matarkörfuna en hún kostaði 22.058 kr. sem er 8% dýrari en hjá Bónus. Lítill verðmunur er á milli Fjarðarkaupa, Krónunnar og Nettós eða aðeins 3%. Matarkarfan hjá  Krónunni er 221 kr. dýrari en hjá Fjarðarkaupum og hjá Nettó er karfan  405 kr. dýrari en hjá Krónunni.

Eins og fyrr segir var matarkarfan dýrust í Nóatúni á 24.680 kr. og næst dýrust í Samkaupum-Úrvali á 24.658 kr. en báðar eru þær 21% dýrari en karfan í Bónus. Matarkarfan kostaði 24.144 kr. í Hagkaupum sem er 18% meira en í Bónus.

Af einstaka vörum í körfunni var mestur verðmunur á bönunum sem voru dýrastir á 379 kr./kg. í Hagkaup en ódýrastir á 129 kr./kg. hjá Fjarðarkaupum, verðmunurinn var 250 kr. eða 194%. Mikill verðmunur var einnig á ódýrustu fáanlegu pastaskrúfunum sem voru dýrastar á 518 kr./kg. í Nóatúni en ódýrastar á 195 kr./kg. í Bónus, sem gerir 166% verðmun.

Enginn verðmunur var á nýmjólk í könnuninni sem kostaði 115 kr./l. í öllum verslunum. Af öðrum vörum í könnuninni má nefna sem dæmi heilsutvennu frá Lýsi 32 daga skammt sem var dýrastur á 1.098 kr. í Samkaupum-Úrvali en ódýrastur á 793 kr. í Bónus verðmunurinn var 305 kr. eða 38%. Gerber sveskjumauk nr.1 var dýrast á 169 kr. í Nóatúni en ódýrast á 139 kr. í Bónus, verðmunurinn var 30 kr. eða 22%. Burger spelt hrökkbrauð var ódýrast á 179 kr. í Bónus og dýrast á 209 kr. í Hagkaup verðmunurinn var 30 kr. eða 17%.

Sjá nánar töflu á heimasíðu ASÍ

Matarkarfan samanstendur af 54 almennum neysluvörum til heimilisins t.d. mjólkurvörum, morgunkorni, grænmeti, kjöti, drykkjarvörum, ásamt ýmsum pakkavörum, dósamat og fleiru.

Í könnuninni var skráð niður hilluverð vöru eða það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í búðinni að hann eigi að greiða fyrir vöruna. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð. Til að auðvelda verðsamanburð er skráð mælieiningaverð vöru, þar sem pakkastærðir eru mismunandi eftir verslunum.

Kostur og Víðir neita þátttöku í könnuninni

Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum; Bónus Akranesi, Krónunni Akranesi, Nettó Mjódd, Fjarðarkaup Hafnarfirði, Hagkaup Holtagörðum, Nóatúni Nóatúni og Samkaupum–Úrvali Húsavík. Verslanirnar Kostur og Víðir neita þátttöku í könnuninni, þar sem þeir telja það ekki þjóna hagsmunum sínum að gerður sé verðsamanburður á vöruverði í verslunum þeirra og öðrum verslunum eins og gert er í þessari könnun.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Tekið af heimasíðu ASÍ