Fleiri og meiri afslættir
Starfsmenn Þjónustuskrifstofu, hafa nú um skeið verið í sambandi við fjölda fyrirtækja í því skyni að fá afslætti og sérkjör fyrir félagsmenn sína í Verslunarmannafélagi Suðurlands og Bárunnar, stéttarfélags.
Lauslega áætlað þá hefur verið haft samband við um áttatíu fyrirtæki í hinum ýmsu greinum á félagssvæðinu svo sem ferðaþjónustu, bílgreinum, afþreyingu og veitingum.
Í stutt máli sagt þá hafa viðtökur þessara fyrirtækja verið framar öllum vonum. Langflest hafa fallist á að veita afslætti og sum verulega en sum fyrirtæki eiga þó erfiðara með það en önnur vegna eðlis starfsemi sinnar og er það skiljanlegt. Þó þótti rétt að reyna við þau líka og var greinilegur áhugi á þessari tillögu okkar og ekki að vita hvernig það þróast á næsta ári eða árum. Á nýju félags- og afsláttarskírteini eru á bilinu 60 – 70 fyrirtæki sem veita afslætti eða bjóða félagsmönnum önnur sérkjör, gegn framvísun félagsskírteinis.
Nokkrar breytingar hafa orðið frá síðasta ári þar sem nokkrir aðilar hafa hætt eða eru að breyta til í rekstrinum. Aðrar hafa komið inn í staðinn og fögnum við því.
Tilgangur þessa framtaks er af tvennum toga, annarsvegar er þetta viðleitni félaganna að létta undir með félagsmönnum sínum en ekki síður að viðhalda eða auka atvinnu á svæðinu með öflugri verslun og þjónustu.
Við hvetjum fólk eindregið til að nýta sér þá afslætti sem í boði eru og munum að hver spöruð króna léttir róðurinn.
Fyrirtækin láta okkar fólk njóta afsláttarkjara, látum fyrirtæki í heimabyggð njóta viðskipta okkar, það er beggja hagur.
Töluvert hefur verið spurt eftir afsláttarskírteinunum og greinilega eru fleiri og fleiri að nýta sér sparnaðinn sem felst í að muna eftir skírteininu.