Við vinnum fyrir þig

Translate to

Heilbrigðisþjónusta á Suðurlandi komin að þolmörkum

Á aðalfundi Bárunnar, stéttarfélags sem haldinn var í gær var samþykkt ályktun um boðaðan niðurskurð á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.  Vakin er athygli á þeim stóraukna fjölda sem nýtir þjónustu svæðisins og á sama tíma á að skera niður. Aðalfundurinn krefst þess að stjórnvöld standi vörð um þjónustuna. Sjá ályktunina í heild:

Heilbrigðisþjónusta á Suðurland komin að þolmörkum

Aðalfundur Bárunnar, stéttarfélags skorar á stjórnvöld að gæta að hagsmunum starfsmanna og þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Félagið vekur athygli á þeim stóraukna fjölda sem nýtir þjónustu svæðisins. Á Suðurlandi er 60% af allri frístundabyggð landsins, 80% ferðamanna sem koma til landsins fara um Suðurland. Hefur verið brugðist við þessu?

Endalaust boðaður niðurskurður er orðið langþreytt fyrirbæri sem kemur niður á starfsfólki og veldur miklu álagi.  Starfsmenn eru að niðurlotum komnir, og enn á að skera niður. Hverjum þjónar þessi niðurskurður og hvaða afleiðingar hefur þetta bæði fyrir starfsmenn og sjúklinga?

Báran, stéttarfélag krefst þess að stjórnvöld snúi sér að forgangsröðun í meðferð fjármagns, og standi vörð um þjónustuna sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands á að veita með hagsmuni sjúklinga og starfsmanna að leiðarljósi.

Aðalfundur Bárunnnar, stéttarfélags haldinn 30.maí 2016.