Við vinnum fyrir þig

Translate to

Niðurstaða atkvæðagreiðslu um kjarasamning sjómanna

Atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi lauk kl. 12:00 á hádegi í dag. Aðild að samningnum eiga öll aðildarfélög Sjómannasambands Íslands að Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur og Verkalýðsfélagi Vestfirðinga undanskildum.

Á kjörskrá voru 1.098 sjómenn og sf þeim kusu 743 eða 67,7% af þeim sem voru á kjörskrá.

Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var þessi:

Já sögðu 177 eða 23,82% af þeim sem kusu.

Nei sögðu 562 eða75,64% af þeim sem kusu.

Auðir seðlar voru 4 eða 0,54%

Samkvæmt framansögðu var því samningurinn felldur með meiri hluta greiddra atkvæða. Verkfall hefst því kl. 20:00 í kvöld (14. desember