Við vinnum fyrir þig

Translate to

Hvert atkvæði skiptir máli!

Rafræn atkvæðagreiðsla hjá Bárunni, stéttarfélagi um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins fyrir störf á almennum vinnumarkaði, sem undirritaður var 3. apríl síðastliðinn lýkur þriðjudaginn 23. apríl kl. 16:00. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða tilkynntar 24. apríl.

Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn Bárunnar sem vinna eftir viðkomandi samningi og greiddu félagsgjöld í janúar/febrúar 2019. Kynningarefni hefur verið sent út í pósti samkvæmt kjörskrá. Frekara kynningarefni um samninginn má nálgast hér.

Fái einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, kynningarefnið ekki sent getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu Bárunnar nk þriðjudag (23. apríl) og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem sanni afdregin félagsgjöld í janúar/febrúar 2019. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 16.00 nk. þriðjudag en  eins og áður segir þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.

Félagsmenn eru eindregið hvattir til að nýta réttindi sín og greiða atkvæði!

Upplýsingar um hvernig skal kjósa

 

Information on how to vote !!

 

Jak głosować?

 

Athugið að félagsmenn sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum falla ekki undir þessa kjarasamninga  og kjósa því ekki um þá.

 

Attention ! If you are working for the town or the state then you are not voting now, you will vote another time.

 

 

Kjósið hér ⇓    Vote here ⇓