Við vinnum fyrir þig

Translate to

Orlofsuppbót 2012

Orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2012 er:

Kjarasamningur SGS og SA (almenni markaður): kr. 27.800-.

Kjarasamningur SGS við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs kr. 27.800-.

Kjarasamningur SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga kr. 37.000-.

Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Uppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu (1. maí til 30. apríl), öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí. Orlofsuppbót innifelur orlof, eru föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.