Við vinnum fyrir þig

Translate to

Rafræn kosning – Sjómannasamband Íslands

Þann 14. nóvember var undirritaður kjarasamningur milli SFS og aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands að Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur undanskildu. Auk þess fór Sjómannasamband Íslands ekki með samningsumboð fyrir Verkalýðsfélag Vestfirðinga.

Hægt er að nálgast samninginn og kynningarefni um hann hér að neðan. Þó svo að vísað sé til Verkalýðsfélags Vestfirðinga í samningnum eru þeir ekki aðilar að þessum samningi, heldur undirrita þeir sérstakan samning sem efnislega er samhljóma þessum samningi.

Jafnframt er hér fyrir neðan samningur milli SSÍ og SFS frá 18. nóvember 2016 sem fellir brott 12. greinina um slysa- og veikindabætur skipverja, en ákvæði um þetta er sett í bókun. Ástæðan fyrir niðurfellingu greinarinnar er sú umræða sem verið hefur um þetta mál undanfarna daga

 

Hér má nálgast samninginn  frá 14. nóvember 2016 á pdf formi.

Hér má nálgast samninginn frá 18. nóvember 2016 vegna 12. greinarinnar.

Hér má nálgast kynningarefni um samninginn.

 

Nú er kosning um kjarasamninginn hafinn. Fyrir þau félög innan SSÍ sem að samningnum standa er hægt að kjósa hér fyrir neðan. Að samningnum standa öll aðildarfélög SSÍ að Verkalýðsfélagi Vestfirðinga og Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur undanskildum. Kosning um þeirra samning fer fram sér fyrir hvort félag.

 

Kjósa um samninginn.