Við vinnum fyrir þig

Translate to

Starfsmann vantar tímabundið í ræstingar

Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna á Suðurlandi vantar starfsmann í hlutastarf við ræstingar vegna fæðingarorlofs.

Starfið felst í ræstingu á skrifstofuhúsnæði, Austurvegi 56 (þriðja hæð), Selfossi. Um er að ræða hlutastarf sem unnið er eftir kl. 16.00 virka daga,  þrisvar í viku.

Hæfniskröfur:
Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg.

Umsóknarfrestur er til til og með 11. október nk.

Nánari upplýsingar veitir Þór Hreinsson skrifstofustjóri í síma 480-5000. Umsóknir má senda á thor@midja.is