Við vinnum fyrir þig

Translate to

Stuðningsyfirlýsing við framboð Drífu Snædal til forseta Alþýðusambands Íslands.

Eftartalin stéttarfélög í Suðurkjördæmi (innan SGS) lýsa yfir fullum stuðningi við framboð Drífu Snædal framkvæmdastjóra Starfsgreinasambands Íslands til forseta Alþýðusambands Íslands á þingi Alþýðusambands Íslands þann 24. október 2018.

Drífa hefur unnið að heilindum í starfi sínu fyrir verkalýðshreyfinguna og er ötul í baráttu sinni fyrir bættum kjörum félagsmanna. Nú eru umbrotatímar þar sem ójöfnuður eykst, skattkerfið er sniðið að þeim efnameiri, félagsmenn eru háðir atvinnurekendum og eða hagnaðardrifnum leigufélögum í húsnæðismálum, kjarasamningsbrot viðgangast víða á vinnumarkaði og almenn mannréttindi eru fótum troðin. Við þær aðstæður teljum við hennar mannkosti besta til þess fallna að veita Alþýðusambandi Íslands forystu til framtíðar.

Báran, stéttarfélag Selfossi

Drífandi stéttarfélag Vestmannaeyjum

Verkalýðsfélag Grindavíkur

Verkalýðs og sjómannafélag Sandgerðis

Verkalýðsfélag Suðurlands Hellu.