Úthlutun orlofshúsa Bárunnar, stéttarfélags fyrir sumarið 2023
Báran, stéttarfélag auglýsir orlofshús félagsins í Grýluhrauni 9, við Þverlág 2 og 6 á Flúðum, Borgarbyggð 12
í Svignaskarði (skiptibústaður) og íbúð á Akureyri (Ásatún 12) til leigu sumarið 2023 fyrir félagsmenn.
Umsóknarfrestur er frá 23. febrúar til 8. mars nk.
Sótt er um á Orlofssíðu Bárunnar, hægt er að fá aðstoð við umsóknarferlið á skrifstofu félagsins að Austurvegi 56, 800 Selfoss eða í síma 480 5000.
Allir félagsmenn geta sótt um, það er eingöngu punktastaða umsækjenda sem ræður niðurstöðu úthlutunar.
Úthlutun orlofshúsa mun liggja fyrir þann 10. mars nk.
- mars kl. 10:00 lýkur greiðslufresti þeirra sem hafa fengið úthlutað. 17. mars kl. 11:00 verða ógreiddar og óúthlutaðar vikur opnar á orlofsvefnum og gildir þá „fyrstur kemur fyrstur fær“.
Öllum umsóknum verður svarað.
Verð á vikudvöl í bústöðunum og fyrir íbúð á Akureyri er 22.000 kr.
Vikuleigan á Flúðum, í Grýluhrauni og Svignaskarði er frá fimmtudegi til fimmtudags.
Vikuleigan á Akureyri er frá miðvikudegi til miðvikudags.
Tímabilin eru:
Þverlág 2 og 6, Grýluhrauni 9, Borgarbyggð 12 – frá 01.06.2023 til 31.08.2023.
Akureyri, – frá 31.05.2023 til 30.08.2023.
Íbúðinni í Sóltúni 28, Reykjavík, verður ekki úthlutað heldur verður hún í sveigjanlegri leigu eins og ávallt.