Verkfall hefst næsta fimmtudag kl. 12 á hádegi
Báran, ásamt 15 öðrum félögum innan Starfsgreinasambandsins, mun hefja verkallsaðgerðir kl. 12 á hádegi næsta fimmtudag. Þá munu um 10.000 manns leggja niður störf víðs vegar um landið. Margar fyrirspurnir hafa borist um skipulag aðgerðanna. Á heimasíðu SGS er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um verkfallið.
Hvenær verður verkfall:
Allsherjarvinnustöðvun frá klukkan12:00 á hádegi til miðnættis sama dag.
6. maí 2015
Allsherjarvinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 6. maí).
7. maí 2015
Allsherjarvinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 7. maí).
19. maí 2015
Allsherjarvinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 19. maí).
20. maí 2015
Allsherjarvinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 20. maí).
26. maí 2015
Ótímabundin vinnustöðvun hefst á miðnætti aðfaranótt 26. maí 2015.
Hverjir fara í verkfall?
Allir félagar sem starfa á félagssvæði Bárunnar, taka laun samkvæmt kjarasamningum SGS og SA og falla ekki undir sérkjarasamninga eru bundnir af niðurstöðu verkfalls. Ef þú ert í vafa hvort þú átt að taka þátt í atkvæðagreiðslu og hugsanlegum verkfallsaðgerðum hafðu þá endilega samband Báruna, stéttarfélag eða Starfsgreinasambandið.
Undanskyldir eru starfsmenn sem starfa eftir:
Kjarasamningi Bárunnar og fjármálaráðherra fh. ríkisjóðs (starfsmenn ríkisstofnana)
Kjarasamningi Bárunnar og Launanefndar sveitarfélaga (starfsmenn sveitarfélaga)
Kjarasamningi Bárunnar og Bændasamtakana (landbúnaðarverkamenn)
Kjarasamningi Bárunnar og Landssambands smábátaeigenda
Kjarasamningi Bárunnar og Landsvirkjunar
Kjarasamningi Bárunnar og Sólheima ses
Kjarasamningi Bárunnar og Kumbaravogs