Vinnandi fólk í 100 ár
Föstudaginn 26. maí nk. kl. 14.00 verður opnuð ljósmyndasýning ASÍ í húsnæði stéttarfélaganna að Austurvegi 56, Selfossi. Veitingar í boði.
Á sýningunni sem kemur frá Þjóðminjasafni Íslands eru ljósmyndir sem veita innsýn í starfsemi Alþýðusambandsins sem fagnaði 100 ára afmæli sínu á síðasta ári. Ljósmyndirnar segja sögu þess fólks sem myndaði hreyfinguna og vakin er athygli á kjörum þess og kjarabaráttu, aðbúnaði á vinnustöðum og vinnuumhverfi.
Sýningin byggir á Sögu Alþýðusambands Íslands eftir Sumarliða Ísleifsson sagnfræðing sem einnig er höfundur sýningatexta. Hún samanstendur af ljósmyndum frá Ljósmyndasafni Íslands, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Kvikmyndasafni Íslands, Þjóðskjalasafni Íslands, Ljósmyndasafni Siglufjarðar, Ljósmyndasafninu á Ísafirði og Ljósmyndasafni Vestmannaeyja.
Sýningin verður opin alla virka daga frá 08.00 – 16.00. Við hvetjum alla til að koma og sjá sögu verkafólks í 100 ár.