![](https://baran.is/wp-content/uploads/2012/10/Ársþing-ASÍ-17.-18.-okt-2012-002.jpg)
ASÍ þingi lokið
Þriggja daga þingi Alþýðusambands lauk í dag. Ragnar Þór Ingólfsson þingfulltrúi úr VR bauð sig fram gegn Gylfa Arnbjörnssyni sitjandi forseta. Gylfi hlaut 69,8% atkvæða en Ragnar Þór 30,2%. Gylfi Arnbjörnsson er því réttkjörinn forseti ASÍ til ársins 2014 en hann var fyrst kjörinn í embættið í október árið 2008. Páll Líndal þingfulltrúi bauð sig fram gegn sitjandi varforseta Signýju Jóhannesdóttur. Signý hlaut 59,5% en Páll 40,5%. Á þinginu voru til umfjöllunar mörg mál varðandi stefnumörkun Alþýðusambandsins. Ályktanir um kjaramál, Evrópumál, atvinnumál, húsnæðismál og lífeyrismál sem samþykktar voru þinginu eftir undangengna hópa- og nefndarvinnu má nálgast á heimasíðu ASÍ.