![](https://baran.is/wp-content/uploads/2013/02/así1.png)
Kaupmáttur – atvinna – velferð
Opinn fundur með ASÍ og stéttarfélögunum á Suðurlandi verður haldinn á Hótel Selfossi fimmtudaginn 28. febrúar 2013 kl. 19:30. Fjallað verður um stöðu kjaramála og kaupmáttar (baráttu við verðbólguna), sókn í atvinnumálum á Suðurlandi og hugmyndir ASÍ að nýju húsnæðislánakerfi að danskri fyrirmynd. Báran, Stéttarfélag hvetur félagsmenn til að mæta á fundinn.