![](https://baran.is/wp-content/uploads/2012/10/Skólakynning-9-10-bekkur-Sunnulækjaskóli-10.-okt-2012-010.jpg)
Hressir krakkar heimsóttu þjónustuskrifstofuna
Í gær komu í heimsókn til okkar á Þjónustuskrifstofuna nemendur úr 9. og 10. bekk Sunnulækjarskóla Selfossi. Þau kynntu sér þjónustu stéttarfélaganna og fengu gagnlegar upplýsingar um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Áður en kynningin hófst var boðið upp á pizzur frá Hróa hetti. Að lokinni kynningu voru nemendurnir leystir út með gjöfum frá félögunum.