Viðtal við Halldóru Sveinsdóttur formann Bárunnar á Rás 2
Í gær ræddi morgunútvarp Rásar 2 við Halldóru S. Sveinsdóttur, formann Bárunnar-stéttarfélags og Arnar G. Hjaltalín, formann Drífandi-stéttarfélags í Vestmannaeyjum um kosningarnar framundan og þau mál sem efst eru á baugi í Suðurkjördæmi. Atvinnumál, kjaramál, samgöngur og aðgangur að heilbrigðisþjónustu voru meðal þess sem bar á góma.