Við vinnum fyrir þig

Translate to

Aðalfundur Bárunnar

Aðalfundur Bárunnar, stéttarfélags verður haldinn mánudagskvöldið 18. maí nk. á Hótel Selfossi. Fundurinn hefst kl. 19.00.

Dagskrá

  1. Venjuleg aðaflundarstörf
  2. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs
  3. Önnur mál

Boðið verður upp á tveggja rétta kvöldverð. Aðalfundargestir taka þátt í happdrætti.

Stjórn Bárunnar, stéttarfélags

Ekki heimilt að slíta ráðningarsamningum bótalaust með vísan til reglna um force majeure

 DSC1070

COVID-19 faraldurinn og ráðstafanir stjórnvalda vegna hans geta haft veruleg áhrif á efndir samninga, þar með talið ráðningarsamninga. En eru áhrifin slík að launagreiðandi geti sagt sig fyrirvaralaust og án bóta frá efndum á ráðningarsamningi við starfsmann sinn á grundvelli reglna um force majeure (óviðráðanlegir atburðir) þar sem ekki sé lengur þörf fyrir vinnuframlag hans?

 

Í grein sem lögfræðingur ASÍ ritar á vef sambandsins kemur fram það álit hans, að ekki sé heimilt að víkja til hliðar ákvæðum kjarasamninga um uppsagnarfresti með vísan til force majeure af völdum COVID-19. Það sé hvorki heimilt á grundvelli almennra og ólögfestra reglna um force majeure eða með vísan til 1.mgr. 3.gr. laga nr. 19/1979 nema hvað varðar hráefnisskort hjá fiskiðjuverum og líklega ef vörur skortir til upp- eða útskipunar.

Hér má lesa nánar um þetta mál

Skrifstofa Bárunnar opnar að nýju

Það er okkur ánægja að tilkynna að skrifstofa Bárunnar, stéttarfélags opnar nk. mánudag (11. maí).

Opnunartími verður líkt og áður frá 8:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga og 8:00-15:00 á föstudögum.

Við þurfum þó að fara varlega áfram og biðjum því alla  að virða tveggja metra regluna í móttökunni og fara eftir reglum sóttvarnalæknis um handþvott  og handspritt.

Ályktun miðstjórnar ASÍ um skilyrði fyrir opinberum stuðningi við fyrirtæki

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands áréttar að opinber stuðningur til fyrirtækja vegna áhrifa COVID-19 á ekki að vera til þess gerður að fyrirtæki sem ekki þurfa á honum að halda vaði í sameiginlega sjóði samfélagsins að vild. Fram hefur komið að Össur ehf. hafi ákveðið að nýta sér hlutabótaleiðina örskömmu eftir að fyrirtækið greiddi eigendum sínum 1,2 milljarða króna í arð. Slíkt athæfi er ósiðlegt og ætti með réttu að vera ólöglegt.

ASÍ hefur ítrekað kallað eftir því að stjórnvöld setji skýr skilyrði við opinberum stuðningi en slíkar kröfur eru í samræmi við ráðleggingar Alþjóðavinnumálstofnunarinnar, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og OECD. Meðal skilyrða sem ASÍ hefur kallað eftir er að fyrirtæki hafi nýtt sér eigin bjargir, þau undirgangist skilyrði um að greiða ekki út arð til tveggja ára eftir að þau njóta fyrirgreiðslu og að fyrirtækin eða eigendur þeirra séu ekki skráð í skattaskjólum. Stjórnvöld hafa brugðist þeirri skyldu sinni að tryggja hagsmuni almennings og komandi kynslóða. Nú er mál að linni.

Útilegukortið enn meira niðurgreitt en áður fyrir félagsmenn Bárunnar

Ákveðið hefur verið að niðurgreiða Útilegukortið enn meira en áður.

Fullt verð á kortunum er 19.900 kr en félagsmenn Bárunnar fá kortið á aðeins 5.000 kr.

Félagsmenn geta keypt kortið á afsláttavef Bárunnar  https://orlof.is/baran/site/product/product_list.php?category_id=4

Hér finnur þú upplýsingar um kortið : https://www.utilegukortid.is/

Orlofskerfi Bárunnar heitir Frímann og má nálgast á heimasíðu Bárunnar, stéttarfélags.

Gistimiðar, útilegukortið, veiðikortið og fl. er selt í gegnum orlofsvef félagsins.

Einnig verður hægt að nálgast útilegukortið,  veiðikortið  og gistimiða á Fosshótel á skrifstofu félagsins að Austurvegi 56, Selfossi.

Afsláttarkort Bárunnar

Hver sá félagsmaður sem greitt hefur samfellt í 6 mánuði til Bárunnar, stéttarfélags fær sent í pósti félagsskírteini sem jafnframt gildir sem afsláttarkort. Inn á orlofsvefnum er hægt að nálgast upplýsingar um þá verslun og þjónustu sem veitir afslátt gegn framvísun kortsins.

Afslættir (afsláttarkort Bárunnar)

 

Gistimiðar

Báran stéttarfélag er með samning við Fosshótel um afsláttarkjör fyrir félagsmenn. Hótelin gefa út gistimiða sem eru til sölu á Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna að Austurvegi 56, 3. hæð.

Fosshótel  árið 2020 (gildir einnig fyrir sumartímann).

Verð á gistimiða er kr. 14.400,- allt árið. Miðinn gildir fyrir tveggja manna herbergi með baði, morgunverður  innifalinn. Hægt er að leigja aukarúm sem greiðist aukalega við innritun. Ath. að á fjögurra stjörnu Íslandshótel er greuddur einn gistimiði +  kr. 5.000 við innritun. Gistimiðar gilda ekki á sérstökum viðburðum svo sem: Menningarnótt, Fiskideginum mikla, Mærudögum og svo framvegis.

Bóka má beint á hótelunum í gegnum síma. Við pöntun verður að koma fram að greitt verði með gistimiða.  Einnig er tekið við bókunum á aðalskrifstofu Fosshótela í síma 562 4000 eða á netfang: bookings@fosshotel.is. Ekki er hægt að bóka í gegnum bókunarvél á heimasíðu. Ath. sum hótelin eru aðeins opin yfir sumartímann. Nánari upplýsingar um hótelin má finna á fosshotel.is

Sjá einnig fleiri hótel og gistiheimili á orlofsvef félagsins.

Með fyrirvara um breytingar verða eftirtalin hótel opin í sumar:

Grand Hótel Reykjavík (4*), Fosshótel Glacier Lagoon (4*), Fosshótel Austfirðir (3*), Fosshótel Húsavík (3*), Fosshótel Vestfirðir (3*), Fosshótel Stykkishólmur (3*) og Fosshótel Reykholt (3*).

 

Veiðikortið, Útilegukortið  

Rétt er að vekja athygli á því að á Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna á Suðurlandi er hægt að greiða og sækja Útilegukortið og Veiðikortið. Við erum að Austurvegi 56, 3 hæð.

 

Veiðikortið 2020

Veiðikortið kostar á fullu verði kr. 6.300 en fyrir félagsmenn Bárunnar  kr. 4.300.

 

Útilegukortið 2020

Útilegukortið kostar á fullu verði 17.000 en kostar 5.000 krónur fyrir félagsmenn.

 

Flugmiðar

Á orlofsvef Bárunnar eru seld gjafabréf hjá Icelandair. Hvert gjafabréf kostar félagsmann 2 punkta auk greiðslu.

Gjafabréfin hjá Icelandair gilda sem kr. 25.000 en Bárufélagar fá þau niðurgreidd og greiða því aðeins kr. 19.500 fyrir hvert gjafabréf.

Heimilt er hverjum félagsmanni að kaupa 2 gjafabréf á hverjum 12 mánuðum.

Við kaup á gjafabréfinu fær viðkomandi númer gjafabréfs sem hann svo síðan slær inn þegar kemur að greiðslu við bókun á flugi. Þá lækkar greiðsla flugmiðans um kr. 25.000 fyrir hvert gjafabréf. Hægt er að nota fleiri en 1 gjafabréf fyrir hverja bókun.

Gildistími gjafabréfanna er 5 ár en athugið að það telur frá þeim degi sem stéttarfélagið Báran keypti bréfin en ekki frá þeim degi sem félagsmaður kaupir þau nema um einn og sama dag sé að ræða.

 

Hægt er að versla gjafabréfin á ORLOFSVEF Bárunnar undir MIÐAR OG KORT eða ss hér → https://orlof.is/baran/site/product/product_list.php?category_id=14

Enn eru lausar vikur í orlofshúsum Bárunnar !! Fyrstur kemur fyrstur fær !

Búið er að úthluta til þeirra sem sóttu um orlofsviku í orlofshúsum Bárunnar.

Enn eru lausar vikur  í sumar og hægt er að panta bústað hér  https://orlof.is/baran/site/rent/rent_list.php

Frátekið er merkt með X.  Utanfélagsmenn geta leigt með viku fyrirvara ef laust er.

Við erum með 2 skiptibústaði í ár í Svignaskarði og Húsafelli.

 

Hér er linkur beint á bústaðina

Húsafell : stór og flottur bústaður https://orlof.is/baran/site/cottage/cottage_details.php?cottage_id=10

Svignaskarð: https://orlof.is/baran/site/cottage/cottage_details.php?cottage_id=7

Grýlyhraun : Nýtískulegur og okkar nýjasti bústaður í Grímsnesinu https://orlof.is/baran/site/cottage/cottage_details.php?cottage_id=6

Þverlág 2 Flúðum : https://orlof.is/baran/site/cottage/cottage_details.php?cottage_id=2

Ásatún á Akureyri : https://orlof.is/baran/site/cottage/cottage_details.php?cottage_id=1

Sóltún – íbúð í Reykjavík, hún var þó ekki í úthlutun og ekkert endilega í vikuleigu

: https://orlof.is/baran/site/cottage/cottage_details.php?cottage_id=5

Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2020

Báran vill minna félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

Almennur vinnumarkaður
Orlofsuppbót er 51.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní.

Ríki
Orlofsuppbót er 51.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1.júní.

Sveitarfélög
Persónuuppbót er 50.450 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. maí. 

Sjá nánar í kjarasamningum viðkomandi aðila.

Tímaskráningar appið KLUKK getur bjargað öllu !

KLUKK appið er tímaskráningar app. Þú skráir í appið kennitölu fyrirtækis eða fyrirtækja sem þú vinnur fyrir og appið staðsetur það í GPS. Þegar þú mætir á vinnustað og ferð frá vinnustað mun appið minna þig á að stimpla þig inn og út.

Þannig getur þú haldið utanum tímaskráningu þína og fylgst með hvort vinnuveitandi greiðir rétt. Ef upp kemur ágreiningur um vinnutíma, gilda upplýsingar úr appinu fyrir dómi.

Hér finnur þú nánari upplýsingar um appið, bæði á íslensku og ensku.

https://www.asi.is/frettir-og-utgafa/samstarfsverkefni/timaskraningarappid-klukk/

 

53-176% munur á hæsta og lægsta verði fyrir þjónustu við dekkjaskipti

Mikill munur er á verði fyrir þjónustu við dekkjaskipti milli þjónustuaðila í verðkönnun verðlagseftirlitsins en minnstur var verðmunurinn 53% en mestur 176%. Í krónum talið nam mesti verðmunurinn 12.700 kr. en sá minnsti 4.000 kr. Minnstur verðmunur var á þjónustu við 15‘‘ minni meðalbíl en mestur var hann, 176%,  á þjónustu við jeppa á 18‘‘ álfelgum. Bifreiðaverkstæðið Stormur á Patreksfirði var oftast með lægsta verðið í könnuninni en Dekkjahöllin oftast það hæsta 

Lægsta verðið í könnuninni fyrir minni og meðalstóra bíla var hjá Stormi og Sólbörðum, það næst lægsta hjá Titancar og þriðja lægsta hjá Dekkjahúsinu. Lægsta verðið á þjónustunni fyrir jepplinga var hjá Titancar og Stormi en Bifreiðaverkstæði SB, Ísafirði, og Dekkjahúsið voru með næst lægsta verðið. Lægsta verðið fyrir jeppa var hjá Titancar og Stormi en Smur– og dekk Patreksfirði og Bílaverkstæði SB, Ísafirði voru næstir þeim í verði.  

Lægsta verðið fyrir minni og meðalstóra bíla hjá Stormi og Sólbörðum en Titancar á höfuðborgarsvæðinu.

Lægst var verðið í könnuninni fyrir dekkjaskipti, umfelgun og jafnvægisstillingu á 14‘‘ smábíl (175/65R14) og 15‘‘ minni meðalbíl (195/65R15) á álfelgum hjá Stormi, Patreksfirði, 7.200 kr. en fyrir sömu gerðir af bílum á stálfelgum var verðið lægst hjá Sólbörðum á Ísafirði. 7.500 kr. Sá aðili sem er með lægsta verðið fyrir sömu gerðir af bílum á höfuðborgarsvæðinu er Titancar en þar borgar viðskiptavinurinn 8.000 kr. fyrir þjónustuna en 8.500 kr. hjá Dekkjahúsinu sem er næst lægsta verðið á höfuðborgarsvæðinu. Hæsta verðið var hjá Arctic Trucks, 11.500 kr. en þeir tóku fram að þeir leggðu mesta áherslu á að þjónusta jeppa. Næst hæsta verðið er hjá Nesdekk, 10.990 kr. og það þriðja hæsta hjá Dekkjahöllinni, 10.950 kr.

Lægsta verðið fyrir meðalbíl með 16‘‘ álfelgum (205/55R16) var hjá Sólbörðum, 7.500 kr. Næst lægsta verðið var hjá G. Ingimarssyni Sauðárkróki, 7.900 kr. en það þriðja lægsta hjá Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga, 7.960 kr. Lægsta veðrið á höfuðborgarsvæðinu var 8.000 kr. hjá Titancar. Hæsta verðið fyrir sama bíl á álfelgum og stálfelgum var hjá Dekkjahöllinni, 11.740 kr. en það næst hæsta hjá Arctic Trucks 11.500 kr.

Skoða má verð fyrir mismunandi bílategundir í fellilistanum hér. Með því að ýta á „Álfelgur“ eða „Stálfelgur raðast verkstæðin eftir hæsta og lægsta verði.

Lægsta verðið fyrir jepplinga og jeppa hjá Stormi og Titancar

Lægsta verðið fyrir dekkjaskipti, umfelgun og jafnvægisstillingu á jeppling á 16‘‘ álfelgum var hjá Stormi, 7.200 kr., það næst lægsta hjá Titancar, 8.000 kr. og þriðja lægsta hjá Bílaverkstæði S.B. Ísafirði, 8.900 kr.

Á höfuðborgarsvæðinu var lægsta verðið fyrir jeppling hjá Titancar, 8.000 kr. fyrir ál- og stálfelgur en næst lægsta verðið var hjá Dekkjahúsinu, 8.500 f. stálfelgur en 9.500 fyrir álfelgur. Verðið var einnig 9.500 fyrir bæði ál- og stálfelgur hjá Kvikkfix.

Lægsta verðið fyrir jeppling á stálfelgum var hjá Titancar 8.000 kr., það næst lægsta hjá Dekkjahúsinu, 8.500 kr. og þriðja lægsta verðið var 8.900 kr. hjá Bílaverkstæði S.B. Hæsta verðið var að finna hjá Dekkjahöllinni, 13.990 fyrir ál- og stálfelgur og það næst hæsta hjá Max1, 13.402 kr.

Verð fyrir þjónustu á jeppum á 18‘‘ álfelgum var lægst hjá Stormi Patreksfirði, 7.200 kr. og næst lægst hjá Titancar, 9.000 kr. Fyrir sama jeppa á stálfelgum var verðið lægst hjá Titancar, 9.000 kr. en næst lægst á 10.500 kr. hjá Bílaverkstæði SB.

Titancar var með lægsta verið á þjónustu fyrir 18‘‘ jeppa á höfuðborgarsvæðinu, 9.000 kr. en Betra grip það næst lægsta, 11.412 kr., í báðum tilfellum hvort sem um ræðir ál eða stálfelgur. Hæsta verðið fyrir jeppa á álfelgum var 19.900 kr. hjá Dekkjahúsinu og það næst hæsta, 17.590 kr. hjá N1. Fyrir jeppa á stálfelgum var hæsta verðið 16.790kr. hjá Dekkjahöllinni en það næst hæsta hjá G. Ingimarssyni, 16.000 kr.

*Costco býður á dekkjaskipti fyrir allar þessar tegundir og stærðir bíla fyrir 4.400 kr. sem er lægsta verðið í könnuninni. Það er þó ekki að fullu sambærilegt þar sem viðkomandi þarf að vera á bíl á dekkjum frá Costco ásamt því að hafa Costco kort.

Eftirfarandi þjónustuaðilar vildu ekki upplýsa verðlagseftirlitið um verð á þjónustunni: Barðinn, Höldur, Hjólbarðaverkstæði Magnúsar Selfossi, X5 Selfossi, Smur- og hjólbarðaþjónustan Reykjanesbæ, Bílaverkstæði Austurlands og Hjólbarðarverkstæði Óskars, Sauðárkróki. Kannað var verð á þjónustu við dekkjaskiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á álfelgum og stálfelgum af stærðum 14,15, 16 og 18´´ á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Ísafirði, Patreksfirði, Reykjanesbæ, Selfossi, Egilsstöðum og Sauðárkróki. Verðið í könnuninni er án afsláttar en verkstæðin bjóða upp á margskonar afsætti t.d. fyrir félaga FÍB og eldri borgara og eru viðskiptavinir því hvattir til að spyrja um afslátt.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.