Við vinnum fyrir þig

Translate to

Kjarsamningarnir í gildi til 30. nóvember

Samkomulag var undirritað í dag milli ASÍ og SA um endurskoðun kjarasamninga. Það felur í sér að samningunum verður ekki sagt upp en samningstíminn hins vegar styttur um tvo mánuði. Launahækkun upp á 3,25% til félagsmanna innan aðildarfélaga ASÍ kemur því til framkvæmda 1. febrúar nk. Yfirgnæfandi meirihluti félaga inna ASÍ var á móti því að segja samningunum upp. Meðal annarra ákvæða í samkomulaginu er samstaða um mótun atvinnustefnu, mótun stefnu í gengis og verðlagsmálum og aukin framlög atvinnurekenda til starfsmenntasjóða.

Samkomulag ASÍ og SA vegna endurskoðunar og framlengingar kjarasamninga

Forsendunefnd ASÍ og SA

Tekið af heimasíðu ASÍ

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands samþykkir drög að samkomulagi

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands kom saman til fundar í vikunni til að fjalla um drög að því samkomulagi ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins sem nú liggur fyrir. Það var skýr niðurstaða fundarins að samþykkja samkomulagið sem gerir ráð fyrir styttingu samningstímans til 30. nóvember 2013, hækkun iðgjalda til fræðslumála auk fleiri þátta. Með þessu móti koma umsamdar launahækkanir til framkvæmda 1. febrúar næstkomandi en samkvæmt kjarasamningum hækka laun þá um 3,25% og lágmarkstekjutrygging fyrir fullt starf um 11.000 krónur.

Samninganefnd Starfsgreinasambandsins skipa eftirtalin félög: Stéttarfélag Vesturlands, Vlf. Snæfellinga, Vlf. Vestfirðinga, Vlsfél. Bolungarvíkur, Stéttarfélagið Samstaða, Aldan stéttarfélag, Eining-Iðja, Afl-Starfsgreinafélag, Vlf. Suðurlands, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Vfl. Grindavíkur og Vlsfél. Sandgerðis.

Tekið af heimasíðu SGS

Fleiri og meiri afslættir

 

Starfsmenn Þjónustuskrifstofu, hafa nú um skeið verið í sambandi við fjölda fyrirtækja í því skyni að fá afslætti og sérkjör fyrir félagsmenn sína í Verslunarmannafélagi Suðurlands og Bárunnar, stéttarfélags.

Lauslega áætlað þá hefur verið haft samband við um áttatíu fyrirtæki í hinum ýmsu greinum á félagssvæðinu svo sem ferðaþjónustu, bílgreinum, afþreyingu og veitingum.

Í stutt máli sagt þá hafa viðtökur þessara fyrirtækja verið framar öllum vonum. Langflest hafa fallist á að veita afslætti og sum verulega  en sum fyrirtæki eiga þó erfiðara með það en önnur vegna eðlis starfsemi sinnar og er það skiljanlegt. Þó þótti rétt að reyna við þau líka og var greinilegur áhugi á þessari tillögu okkar  og ekki að vita hvernig það þróast á næsta ári eða árum.

Vænta má með að á nýju félags- og afsláttarskírteini verði á bilinu 60 – 70 fyrirtæki sem, veita afslætti eða bjóða félagsmönnum önnur sérkjör, gegn framvísun félagsskírteinis.

Tilgangur þessa framtaks er af tvennum toga, annarsvegar er þetta viðleitni félaganna að létta undir með félagsmönnum sínum en ekki síður að viðhalda eða auka atvinnu á svæðinu með öflugri verslun og þjónustu.

Við hvetjum fólk eindregið til að nýta sér þá afslætti sem í boði eru og munum að hver spöruð króna léttir róðurinn.

Fyrirtækin láta okkar fólk njóta afsláttarkjara, látum fyrirtæki í heimabyggð njóta viðskipta okkar, það er beggja hagur.

Á tímamótum

Báran stéttarfélag í samvinnu við Fræðslunet Suðurlands bjóða þeim félagsmönnum sem huga að starfslokum vegna aldurs að sækja námskeiðið Á tímamótum.

Á námskeiðinu verður  m.a. fjallað um: Félagslega þætti og breytingar sem verða á lífi fólks þegar nálgast starfslok og í framhaldi þeirra, andlegt og líkamlegt heilsufar, sjálfsmynd, lífsgæði og hugarfar á þessum tímamótum. Einnig um áhrif mataræðis á heilsuna, næringu, hreyfingu og heilsugæslu. Þjónusta sveitarfélaga verður kynnt sem og þjónusta Tryggingastofnunar og málaflokkar sem heyra undir hana og Sjúkratryggingar Íslands s.s. reglur um greiðslur lífeyris og útreikning lífeyris, viðmiðunartekjur, frítekjumörk, réttindi o.fl.

Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir félagsmenn Bárunnar, stéttarfélags.

Skráning og upplýsingagjöf fer fram hjá Fræðsluneti Suðurlands í síma 480-5000 eða á heimasíðunni fraedslunet.is

Námskeiðið hefst þriðjudaginn 5. febrúar og lýkur 19. febrúar

Staður: Sandvíkursetur á Selfossi

Alls 15 kennslustundir

Fyrirlestrar eru á þriðjudögum og fimmtudögum

kl. 16.50-19:00.

Fundur í samninganefnd

Fundur samninganefndar Bárunnar, stéttafélags var haldinn 14. janúar sl. samninganefnd er skipuð stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins.  Á fundinum var farið yfir stöðuna í samningamálum nú þegar komið er að endurskoðun forsenduákæða. Þungt var í fólki og ljóst að enginn er ánægður með hvernig mál standa nú um mundir. Miklar umræður sköpuðust um stöðuna og töluverður hiti í fólki. Niðurstaða fundarins var að samningum skuli ekki sagt upp en að samningstími skuli styttur. Fundurinn sendi frá sér eftirfarandi ályktun:

Báran, stéttarfélag á Selfossi tekur undir með Samtökum Atvinnulífsins.

Fundur samninganefndar Bárunnar, stéttarfélags Selfossi tekur undir með Samtökum atvinnulífsins að nauðsynlegt sé að “samningsaðilar hefji nú þegar vinnu vegna næstu kjarasamninga sem þarf að felast í mótun á sameiginlegri sýn á getu atvinnulífsins og samfélagsins til launahækkana og aukins kaupmáttar á næstu árum“.

Launafólkið í landinu hefur sýnt mikið æðruleysi í öllum þeim ólgusjó verðbólgu, verðhækkana og skattahækkana sem dunið hafa yfir síðustu misseri án nokkurs samráðs við launafólk.

Í ljósi þeirrar staðreyndar að aftur og aftur hefur orðið forsendubrestur og samningsmarkmið hafa ekki náðst telur félagið að ekki verði lengur við unað.

Samninganefnd Bárunnar, stéttarfélags skorar á Samtök atvinnulífsins að koma á móts við launamenn þessa lands og stytta samningstímann í gildandi kjarasamningum frá 5. maí 2011 – 30. september 2013.

Fundar í stjórn og trúnaðarmannaráði Bárunnar

Báran stéttarfélag hefur boðað  til fundar í trúnaðarmannaráði félagsins næstkomandi mánudag þann 14. janúar  klukkan 19.30. Fundurinn verður haldinn að Austurvegi 56 í sal stéttarfélaganna á Selfossi.  Aðalumræðuefni verða kjaramál. Tekin verður ákvörðun um hvort félagið eigi að leggja til að kjarasamningum verði sagt  upp núna í janúar þar sem samningforsendur hafa ekki staðist.

Lög Bárunnar, stéttarfélags, 19. grein
Í trúnaðarmannaráði eiga sæti: Stjórn félagsins og þeir fullgildir félags­menn sem kosnir hafa verið trúnaðarmenn á vinnustöðum.

Í forföllum aðalmanna taka varastjórnarmenn félagsins sæti í trúnaðar­mannaráði fyrir stjórnarmenn.

Laun um áramót

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki álag á stórhátíðum, en stórhátíðir teljast til dæmis gamlársdagur eftir kl. 12 og nýársdagur. Öll vinna á stórhátíðardögum greiðist með tímakaupi, sem er 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. Í vaktavinnu skal greiða 90% vaktaálag á stórhátíðardögum samkvæmt samningi SGS við ríki og sveitarfélög.

Read more „Laun um áramót“

Opnunartími skrifstofunnar

Þjónustuskrifstofa stéttarfélaganna á Suðurlandi  verður opin 27. og 28.desember.  Við opnum eftir áramót þann 2. janúar kl. 08.00.

27 og 28. desember eru skrifstofurnar opnar frá kl.08.00 – 16.00.

 

Starfsfólk skrifstofanna sendir félagsmönnum og fjölskyldum

þeirra jóla og hátíðarkveðjur.

 

Þór, Þórunn, Hugrún og Hjalti